Handverkskaffi
23.09.2009.

Handverkskaffi

Dagskrá haustsins er eftirfarandi: 

7. október -Henna húðskreytilist – Húmor og Amor

Henna húðskreytilist er tímabundið húðflúr sem á sér aldalanga hefð í austrænnimenningu. Henna dregur nafn sitt af plöntunni sem litar efnið er unnið úr. Skreytilistin tengist upprunalega ýmiskonar hátíðarhöldum, sérstaklega brúðkaupum og skreytingu brúðarinnar. Darren Foreman kynnir henna fyrir gestum og málar jafnvel sýnishorn á þá sem þess óska. Kynningin er hluti af verkefninu Húmor og Amor á vegum menningarstofnanna Reykjavíkurborgar.
Darren Foreman kynntist henna húðskreytilist í gegnum vin sinn sem búið hefur í Marakó. Menningarleg tenging, hverfulleiki og notkun náttúrulegra efna er það sem heillar Darren við henna.

4. nóvember
-Brjótum saman bréf .... Bréfbrot / Origami

Origami, eða bréfbrot er ævaforn japönsk listgrein sem felst í að búa til skrautmuni með því einu að brjóta saman pappír. Margir kannast við fugla, froska og aðrar fígurur en einnig er hægt að gera stór þrívíð form með því að setja saman margar einingar. Björn Finnsson sýnir gestum undirstöðu atriði bréfbrots / origami auk þess sem flókari verk verða til sýnis á staðnum.
Björn Finnsson er áhugamaður um bréfbrot (origami). Hann hefur leiðbeint börnum og fullorðnum í bréfbroti og samið leiðbeiningar. Hann starfar semverkefnastjóri á barnasviði Miðbergs sem er frístundamiðstöð fyrir börn á aldrinum 6-16 ára.

2. desember -Gott í gogginn -Jólakonfektgerð
Í hugum margra er jólakonfektgerð órjúfanlegur hluti jólaundirbúningsins. Uppskriftir og aðferðir við jólakonfektgerð eru fjölmargar, sumar einfaldar en aðrar flóknar. Guðrún Sigríður, eða Sirrý býr til nokkrar einfaldar gerðir jólakonfekts fyrir gesti á handverkskaffi Gerðubergs. Sirrý leggur áherslu á skemmtilegar og einfaldar uppskriftir sem henta allri fjölskyldunni. Gestir fá að smakka góðgætið og geta tekið nokkrar uppskriftir með sér heim.
Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, eða Sirrý er matreiðslumaður að mennt en starfar sem sölumaður. Sirrý hefur um nokkura ára skeið leiðbeint börnum á Barnaspítala Hringsins við gerð jólakonfekts.