Information

Translation Service

Click here  to order an interpreter. Or call 530-9303.

Nytsamlegir tenglar

   

 

 

 

Móðurmál er máttur 

 

For Schools PDF Print E-mail
Saturday, 16 August 2008

Fræðsla fyrir börn og unglinga:
Hér að neðan eru kynnt nokkur af þeim námskeiðum sem fræðsludeild Alþjóðahúss býður upp á. Athugið þó að öll námskeið má sérsníða ákveðnum hópum, bæði hvað varðar efni og innihald, námskeiðslengd o.s.frv.

Námskeiðin eru sniðin annars vegar að hinum ýmsu hópum barna og unglinga, s.v. nemendahópum, vinnuskólahópum, þátttakendur á tómstundanámskeiðum  o.s.frv.Leiðbeinandi á námskeiðunum er kennaramenntaður.

Fjölmenning og fordómar.

Námskeið ætlað nemendum vinnuskóla.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað nemendum vinnuskóla þar sem markmiðið er að efla og styrkja fjölmenningarlega færni. Fjallað verður um þætti eins og fjölmenningu, fordóma, staðalímyndir, virðingu, umburðarlyndi, mannúð og réttlæti. Mikið er lagt upp úr virkni þátttakenda og eru fjölbreyttar kennsluaðferðir í fyrirrúmi s.s. hópefli, bein kennsla, leikir, umræður, verkefnavinna, myndasýningar og frásagnir.
Lengd námskeiðs er 3 klst. (Einnig er möguleiki er á styttri útgáfu á þessu námskeiði)
Verð 48.000,-

Islam fyrir börn og unglinga:
Ein umtöluðustu trúarbrögð heims eru islam en jafnframt eru ranghugmyndir og vanþekking á þeim mjög útbreydd. Mikið er talað um islam í umhverfi unglinga og þá gjarnan í tengslum við eitthvað neikvætt. Sagt er frá trúarbrögðunum með áherslu á hvað er líkt með þeim og kristni, sem og samþættingu trúar og menningar í mismunandi löndum.

Markmið: Að unglingarnir hafi einhverja hugmynd um hvað islam er og hvernig trúin og menningin tengist saman. Að gefa þátttakendum tækifæri til að fá svör við spurningum sem þeir hafa um trúnna og fylgjendur hennar. Boðið er upp á námskeiðið í samvinnu við Amal Tamimi hjá Jafnréttishúsi.
Tími: 2 tímar
Verð: 32.000

Fjölmenningarfræðsla fyrir börn og unglinga I
Börn eru áhugasöm um jafnaldra sína annarstaðar í heiminum og hægt að virkja þann áhuga til að fá þau til að hugsa um fjölbreytni samfélagsins. Notuð er tónlist, myndir og áhugaverðir munir til að ná til barnanna og kynna þeim menningarheim annarra barna og unglinga í heiminum.
Áhersla er lögð á á þátttöku þeirra í umræðum og leikjum. Á þennan hátt er vakin með þeim jákvæð viðhorf til fjölmenningar og þau fengin til að hugleiða hvað þau geta gert til að hjálpa nýjum börnum að komast inn í hópinn og líða vel.
Markmið: Að gera börnin miðvituð um að við erum ólik en jöfn og fá þau til að hugsa jákvætt um þennan mismun sem og hvernig umhverfi okkar er orðið alþjóðlegra en það var fyrir nokkrum árum síðan. Notaður eru myndir, tónlist skrift og umræður.
Tími: 1 tími
Verð: 16.000


Fjölmenningarfræðsla fyrir börn og unglinga II
Í fræðslunni verða leikir, tónlist, myndir og skrift notuð til að opna umræður um innflytjendur, fordóma og staðalmyndir.
Talað verður um unglinga erlendis með áherslu á það sem er sameiginlegt þrátt fyrir að margt sé ólíkt. Reynt verður að láta þátttakendur sjá aðstæður erlendra unglinga á Íslandi og fólksflutninga milli landa út frá eigin reynslu og skapa á þann hátt skilning. Mikil áhersla er á virkni í umræðum í gegnum leik.
Markmið: Að skapa opna og gagnrýna umræðu um mannréttindi, staðalmyndir, fordóma og menningu í víðu samhengi. Notaðir verða leikir og tónlist til að opna umræður og hreyfa við hópnum á þann hátt að sem flestir taki þátt.
Tími: 1 tími
Verð: 16.000

Siðfræði fjölmenningar
Fjallað verður um ýmis siðferðileg álitamál sem upp kunna að koma í fjölmenningarlegu samfélagi. Rætt er um aðstæður útlendinga og fólksflutninga út frá reynslu áheyrenda og með áherslu á jafnaldra þeirra. Rætt verður um menningarmun, menningarsjokk, fordóma, rasisma, mannréttindi og orsakir og afleiðingar fólksflutninga.
Markmið: Að skapa opna og gagnrýna umræðu og vekja þátttakendur til umhugsunar.  Notuð er  hreyfing, leikir, verkefni og umræður til að nálgast umræðuefnið á þann hátt að sem flestir taki þátt.
Tími: 2 tímar
Verð: 32.000

 

Mannréttindafræðsla fyrir efri bekkinga grunnskóla og framhaldsskólanema
Fjallað verður um aðstæður útlendinga og fólksflutninga út frá reynslu áheyrenda og með áherslu á jafnaldra þeirra. Rætt verður um menningarmun, menningarsjokk, fordóma, rasisma, mannréttindi og orsakir og afleiðingar fólksflutninga.
Markmið: Að skapa opna og gagnrýna umræðu og vekja þátttakendur til umhugsunar.  Notuð er tónlist, hreyfing, leikir, verkefni og umræður til að nálgast umræðuefnið á þann hátt að sem flestir taki þátt.
Tími: 2 tímar

Verð: 32.000
 

Fræðsla fyrir kennara og starfsfólk skóla, félagsmiðstöðva o.fl.
Námskeiðin eru sérsniðin kennurum, starfsfólki skóla, leiðbeinendum í vinnuskólum og starfsmönnum félagsmiðstöðva o.fl
.
Hér að neðan eru kynnt nokkur af þeim námskeiðum sem fræðsludeild Alþjóðahúss býður upp á. Athugið þó að öll námskeið má sérsníða ákveðnum hópum, bæði hvað varðar efni og innihald, námskeiðslengd o.s.frv.

Málefni innflytjenda
Námskeiðið er sérstaklega ætlað kennurum og starfsfólki efri bekkjum grunn- og framhaldsskóla.
Fjallað verður m.a. um aðgengi ungra innflytjenda að framhaldsskólanámi, brottfall þeirra úr námi, félagslega einangrun, íslenskukennslu, móðurmálskennslu og samskipti skóla og nemenda og foreldra þeirra.
Markmið: Að opna umræðu um það hvernig málefni innflytjenda hafa áhrif á skólastarfið og setja það í samhengi við samfélagsþróun. Fyrirlesturinn á að hafa beint hagnýtt gildi við skipulagningu skólastarfsins og auðvelda kennurum starf í síbreytilegu samfélagi.
Tími: 2 tímar.
Verð: 32.000

Fjölmenningarlegt samfélag
Námskeiðið er sérstaklega ætlað foreldrum barna í grunn- og framhaldsskólum, t.d. foreldrafélög.
Fjallað verður um málefni útlendinga á Íslandi með sérstakri áherslu á börn og ungmenni og hvað þau þurfa að glíma við. Rætt verður um fordóma, menningarsjokk og menningarmismun, kosti þess að þekkja aðra menningarheima, hvernig er fyrir ungmenni að flytjast í nýtt land, munurinn á því umhverfi sem ungmenni búa við núna og því sem við ólumst upp í og þær ögranir sem foreldrar standa frammi fyrir núna vegna þess.
Markmið: Að gefa áheyrendum heildstæða mynd af stöðu mála sem ætti að gera þeim kleift að leggja gagnrýnið mat á opinbera umræðu og leiðbeina börnum sínum í átt að fordómalausum samskiptum.
Tími: 2 tímar
Verð: 32.000

Að vinna gegn fordómum - fræðsla sniðin að þeim sem starfa með börnum og unglingum
Námskeiðið er sérstaklega ætlað starfsfólki frístundaheimila, tómstundamiðstöðva og íþróttafélaga, leiðbeinendum Vinnuskóla o.fl.
Megináhersla er á að vekja þá sem starfa með unglingum til meðvitundar um eðli og tilkomu fordóma. Kenna þeim að þekkja fordóma hjá sjálfum sér og í umhverfi sínu. Kenndar verða aðferðir til að bregðast við fordómum meðal unglinga og leiðir til að opna umræðu og stýra henni, um fordóma í hópnum, t.d. með leikjum.
Markmið: Að leiðbeinendurnir þekki fordóma, séu óhræddir við að takast á við þá í starfi og kunni aðferðir sem koma að gagni við að draga úr fordómum meðal unglinga.
Tími:  2 tímar
Verð: 32.000
Leiðbeinandi er kennaramenntaður og hefur mikla reynslu af vinnu með börnum og unglingum.


Að opna dyrnar fyrir kostum fjölmenningar
Námskeið ætlað þeim sem vinna með börnum og unglingum með það að markmiði að auðvelda þeim að auka þátttöku barna og unglinga af erlendum uppruna í tómstundum og íþróttum.
Þátttaka í tómstundastarfi er mikilvæg fyrir börn til að auðvelda aðlögun þeirra, koma í veg fyrir félagslega erfiðleika og efla þroska þeirra sem einstaklingar.
• Ætlað öllum þeim sem bjóða upp á félags- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga, s.s. þjálfara, tómstundafulltrúa o.fl.
• Hvernig og hvers vegna á að nálgast og fá til starfa erlend börn og unglinga?
• Hvað þarf að hafa í huga í starfi með þeim umfram starf með íslenskum börnum og unglingum?
• Hvað hafa þarf í huga við upplýsingamiðlun og gerð kynningarefnis.
• Kostir fjölmenningar og hvernig hægt er að nýta breytt samfélag til að efla menningar- og félagsstarf.
• Hvernig getur menning og reynsla innflytjenda nýst og auðgað í þessu samhengi?
• Tækifæri og ögranir.
• Samskipti við foreldra
• Menningarmunur, menningarsjokk
•  Fordómar
Markmið: Að auðvelda þeim sem starfa að tómstundamálum barna og unglinga að laða börn og unglinga af erlendum uppruna að starfinu.
Tími: 3 tímar.
Verð: 48.000

Fjölmenningarlegir leikir og verkefni
Námskeiðið er sérstaklega ætlað kennurum, starfsfólki frístundaheimila, tómstundamiðstöðva og íþróttafélaga, leiðbeinendum Vinnuskóla o.fl
Fjallað verður um skipulagningu kennslustunda og tómstundastarfs þar sem ætlunin er að vekja þátttakendur til umhugsunar um fjölmenningarlegt samfélag. Kenndir verða aðferðir  og leikir sem kennarar og leiðbeinendur í störfum með ungu fólki geta notað og þróað áfram í störfum sínum.
Tími: 2 tímar.
Verð: 32.000.

 

 
< Prev   Next >