Information

Translation Service

Click here  to order an interpreter. Or call 530-9303.

Nytsamlegir tenglar

   

 

 

 

Móðurmál er máttur 

 

Fyrir fyrirtæki PDF Print E-mail
Saturday, 16 August 2008

Fræðsla fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök
Hér að neðan eru kynnt nokkur af þeim námskeiðum sem fræðsludeild Alþjóðahúss býður upp á. Athugið þó að öll námskeið má sérsníða ákveðnum hópum, bæði hvað varðar efni og innihald, námskeiðslengd o.s.frv.

 

Samskipti á fjölmenningarlegum vinnustað  
Námskeiðið er ætlað starfsfólki og stjórnendum
Rætt verður um málefni innflytjenda almennt, hvaðan fólk kemur, hvernig og af hverju. Í framhaldinu er farið í eftirtalin efnisatriði:
• Menningu almennt og menningarsjokk sem flestir glíma við í nýju landi, menningarmun og kosti og galla fjölmenningar.
• Fordóma, hvað þeir eru, hvernig þeir verða til, hvaðan þeir koma, muninn á fordómum og skoðunum og hvernig hægt er að eyða fordómum hjá sjálfum sér og öðrum.
• Samskipti á vinnustað, hvernig hægt er að verða betri vinnufélagi, samskipti þrátt fyrir tungumálaörðugleika og hvernig bæta má starfsandann á vinnustaðnum.
Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku og umræður. Námskeiðið hefst á stuttum leik til að hrista hópinn saman og opna umræðuna. Öðru hvoru er dagskráin síðan brotin upp með verkefnum og/eða leikjum til að gera hópinn virkari og efla umræðuna.

Markmið: Vekja þátttakendur til umhugsunar og efla þá í starfi – bæði í innra starfi sem og í þjónustu við viðskiptavini, þar sem það á við. Bæta samskipti á vinnustað og þar með vellíðan í starfi og afköst.
Tími: 3 klst.
Verð: 48.000

Þjónusta í fjölmenningarlegu umhverfi
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem sinnir þjónustustörfum
Rætt um málefni innflytjenda í tengslum við þjónustuumhverfi stofnana og fyrirtækja. Farið verður í eftirtalin efnisatriði:
• Hvernig bæta má þjónustu við þá sem tala litla íslensku – fordómar og feimni við þá sem hvorki skilja né tala vel.
• Samskipti þrátt fyrir tungumálaörðugleika, sérþarfir innflytjenda og hvernig maður getur þekkt og tekist á við fordóma hjá sjálfum sér og öðrum.
• Hvernig lögð sé sérstök áherslu á þjónustu við útlendinga og sá hópur laðaður að með sérstökum aðgerðum.
• Hvernig vera má meðvitaður um menningarmun, hugsanlega vanþekkingu innflytjenda á kerfinu og oft úrræðaleysi.

Markmið: Bæta þjónustuna og auðvelda starfsfólki vinnu sína. Auka vellíðan starfsfólks og ánægju viðskiptavina.
Tími:  3 klst.
Verð: 48.000

Menningarfærni fyrir stjórnendur
Á fjölmenningarlegum vinnustað er mikilvægt að stjórnendur taki frumkvæði í að skapa jákvætt andrúmsloft á vinnustaðnum og hvetji til samskipti milli starfsmanna. Á íslenskum vinnumarkaði er mikil samkeppni um starfsfólk. Gott vinnuumhverfi er þar mikilvægur þáttur í því að ná í og halda góðu starfsfólki. Á námskeiðinu verður farið í eftirtalin efnisatriði:
• Hvaða aðferðir er hægt að nota til að skapa jákvætt andrúmsloft.
• Hvernig eigin menning getur sett manni skorður í samskiptum við aðra.
• Hvernig hægt er að auka samskipti þrátt fyrir tungumálaörðugleika og takast á við fordóma og feimni hjá þeim sem hvorki skilja né tala vel.
• Skapa skilning á vinnustaðnum á hugsanlegri vanþekkingu innflytjenda á því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og oft úrræðaleysi.
• Muninn á þjóðmenningu og fyrirtækjamenningu.
• Hvernig skapa má og vinna með fjölmenningarlega fyrirtækjamenningu?

Markmið: Auka menningarfærni stjórnenda. Gefa þeim tæki sem þeir geta beitt til að skapa jákvætt andrúmsloft á vinnustaðnum. Auka hæfni þeirra í að koma í veg fyrir að upp komi vandamál í samskiptum fólks af ólíkum uppruna og að takast á við slík vandamál, ef þau koma upp.
Tími:  3 klst.
Verð: 48.000

Fjölmenningarsamfélag í sveitafélaginu
Námskeiðið er sérstaklega sniðið  fyrir stjórnendur sem starfa hjá sveitafélögum um land allt.
Á námskeiðinu fá stjórnendur fræðslu um stöðu innflytjendamála á Íslandi, jafnt út frá tölfræðilegum upplýsingum sem og sýn innflytjandans.
• Farið verður yfir tölfræðilegar upplýsinga, m.a. um fjölda og þjóðerni innflytjenda, reglur um dvalar- og atvinnuleyfi. Farið verður í tölfræðilegar upplýsingar sem unnar eru sérstaklega fyrir viðkomandi sveitafélag eða svæði. Þannig verður sjónum beint að bæjarfélaginu og nágrenni þess og staða innflytjandans þar skoðuð sérstaklega.
• Þá verður sjónum beint að stöðu innflytjandans og upplifun og þeim menningarárekstrum og hindrunum sem hann getur orðið fyrir þegar hann flyst milli landia.
• Skoðað verður mikilvægi framkvæmdaáætlana og verkferla í innleiðingu fjölmenningarsamfélagsins, bæði með tilliti til þjónustu við erlenda viðskiptavini sveitafélagsins og einnig starfsmanna.
• Að lokum verða hugtökin fjölmenning, þjóðmenning og fyrirtækjamenning skoðuð með tilliti til starfsmanna og stjórnenda sveitafélagsins.
Námskeiðið er byggt upp af fyrirlestrum, verkefnum og umræðuhópum og lögð er sérstök áhersla á það að þátttakendur taki virkan þátt og deili reynslu sinni með öðrum stjórnendum.
Markmið: Að gefa stjórnendum sveitafélaga þekkingu og reynslu sem mun stuðla að betri þjónustu til ólíkra hópa í bæjarfélaginu.
Tími: 3 klst
Verð:  48.000,-

Viðtalstækni
Farið verður í grundvallaratriði viðtalstækni og þau atriði sem skipta þar mestu til að viðtal beri viðunandi árangur. Þá verður lögð sérstök áhersla á að skýra mögulegan menningamun, hindranir og misskilning sem upp geta komið milli íslenskra og erlendra starfsmanna / íbúa í samskiptum þeirra.
• Umhverfið - að velja stað og stund
• Siðfræði og valdamunur
• Líkamstjáning, orð og tónn
• Staða nýrra starfsmanna / íbúa - erlendra sem íslenskra
• Menningarhindranir og mögulegur misskilningur
• Alls konar íslenska – að læra að hlusta og tala einfalt mál
• Að nota túlk í viðtölum
• Að tryggja skilning og byggja traust

Markmið: Að efla þá starfsmenn og stjórnendur sem m.a. taka viðtöl við nýja starfsmenn og/eða nýja íbúa sveitafélaga, í starfi. Námskeiðið er 4 klst. og er byggt upp á fyrirlestrum umræðum, verkefnum og hlutverkaleikjum. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku þáttakanda.
Tími: 4 klst.
Verð: 64.000,-

Trúnaðarmenn á fjölmenningarlegum vinnustað
Trúnaðarmenn og fulltrúar stéttarfélaga eru mikilvægir tengiliðir starfsfólks við stéttafélög, hvort sem um er að ræða innlenda og erlenda starfsmenn. Aukinn fjöldi erlendra starfsmanna á vinnustöðum hefur stundum í för með sér að breytingar á hlutverki trúnaðarmannsins og því er mikilvægur hluti af þjálfun þeirra að fræða þá um fjölmenningu á vinnustað og að þeir fái í hendurnar þekkingu; tæki og tól til að ráða fram úr nýjum og breyttum verkefnum. Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir:
• Stöðu innflytjendamála á Íslandi og stöðu mála á vinnumarkaði. Breytingar og þróun undanfarna ára verða m.a. skoðaðar og ræddar.
• Hlutverk trúnaðarmanna á fjölmenningarlegum vinnustað. Farið verður yfir ný verkefni og breytt hlutverk trúnaðarmanna, skyldur þeirra og ábyrgð með tilliti til fjölmenningalegs vinnustaðar.
• Menningu almennt og menningarsjokk sem flestir glíma við í nýju landi, menningarmun og kosti og galla fjölmenningar.
• Fordóma, hvað þeir eru, hvernig þeir verða til, hvaðan þeir koma, muninn á fordómum og skoðunum og hvernig hægt er að eyða þeim hjá sjálfum sér og öðrum.
• Samskipti á vinnustað, hvernig hægt er að verða betri trúnaðarmaður og hvernig má best miðla upplýsingum til erlendra starfsmanna.
• Samskipti þrátt fyrir tungumálaörðugleika og hvernig bæta má starfsandann á vinnustaðnum.
Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku og umræður. Námskeiðið hefst á stuttum leik til að hrista hópinn saman og opna umræðuna. Öðru hvoru er dagskráin síðan brotin upp með verkefnum og/eða leikjum til að gera hópinn virkari og efla umræðuna.

Markmið: Vekja þátttakendur til umhugsunar og efla þá í starfi trúnaðarmanns. Bæta samskipti á vinnustað og þar með vellíðan í starfi og afköst.
Tími: 3 klst.
Verð: 48.000

Lagaumhverfi innflytjenda
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og starfsmönnum
Farið verður m.a. annars yfir:
• Yfirlit  og umfjöllanir um lög sem varða innflytjendur:
• Mismunandi lög og reglur um mismunandi hópa (EES búa og aðra).
• Flokkar leyfa – dvalarleyfi A til K, búsetuleyfi, tímabundið atvinnuleyfi og óbundið.
• Hverjir þurfa hvaða leyfi, skilyrði, gildistími og endurnýjun.
• Ríkisborgararéttur og mikilvæg skilyrði í lögum um félagslega aðstoð, íslenskuþekkingu, aldur o.fl.

Markmið: Að yfirmenn og þeir starfsmenn fyrirtækja sem sjá um að útvega atvinnuleyfi fyrir starfsmenn þeirra þekki lagaumhverfið og þær hömlur sem lögin setja útlendingum. Mikil áhersla er lögð á að laga efnið að hópi þátttakanda og virkja þá til þátttöku og hvetja til spurninga og umræðu um málefni innflytjenda.
Leiðbeinandi er Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss.
Tími: 3 klst.
Verð: 48.000

Alþjóðahús, innflytjendur og mannréttindi
Námskeiðið er ætlað stjórnendum stofnana og fyrirtækja og þeim sem vinna að málefnum innflytjenda.
Stutt en um leið efnismikið námskeið, sem skiptist í tvo hluta og ætlað er að setja áheyrendur vel inn í málefni innflytjenda út frá faglegum sjónarmiðum og frá sjónarmiði mannréttinda. Farið verður í eftirfarandi efnisatriði:
• Starfsemi hússins kynnt og sú þjónusta sem innflytjendur og aðrir sækja til þess.
• Staða málefna innflytjenda og umræður um það hvert þau mál stefna, m.a. um erfiðleika og tækifæri innflytjenda í nýju landi, löggjöf um innflytjendur og efnahagsleg og félagsleg tengsl innflytjenda við samfélagið.
• Íslensku kennsla og notkun túlka.
• Fjallað um mannréttindi, m.a. út frá fólksflutningum og hvað það er sem skerðir réttindi fólks.
• Munurinn á fordómum, staðalmyndum og rasisma. Mismunandi birtingarform fordóma og áhrif á líf geranda og þolanda. Fjallað um muninn á fordómum og skoðun.
• Fjallað um kosti og galla menningarlegrar fjölbreytni innan samfélagsins og hvort fjölmenning er annað en þjóðbúningar og framandi matargerð.

Markmið: Að áheyrendur þekki fjölbreytni og mikilvægi starfsemi Alþjóðahússins og hvaða þjónustu innflytjendur þurfa umfram aðra. Að áheyrendur þekki meginþætti málefna innflytjenda og geti tekið þátt í umræðu um þau á faglegum forsendum. Skapa opinskáar og heiðarlegar umræður um mannréttindi, fjölmenningu, menningarmun, fordóma og rasisma. Umræðan sett í samhengi við íslenskt samfélag og líf þátttakenda.
Tími: 4 klst.
Verð: 64.000

 
< Prev   Next >