Upplýsingar

Túlkaþjónusta

Vantar þig túlkaþjónustu?

Sendu póst á tulkun(at)ahus.is eða hringdu í síma 530-9303.

Nytsamlegir tenglar

   

 

 

 

Móðurmál er máttur 

 

Fræðsla PDF Drukuj Email
16.08.2008.

Fræðsludeild Alþjóðahúss býður upp á námskeið og fyrirlestra um allt sem tengist innflytjendum, menningarfærni og fjölmenningarlegu samfélagi. Námskeiðin henta fyrirtækjum og skólum, stjórnendum og starfsmönnum, börnum og fullorðnum. Námskeiðin eru til þess ætluð að bæta samskipti á fjölmenningarlegum vinnustöðum, gera þjónustufyrirtækjum auðveldara að þjónusta fjölbreyttan hóp viðskiptavina og efla umræðu um það hvernig samfélagi við viljum búa í. Hvert námskeið er sérsniðið að þörfum kaupanda, bæði hvað varðar lengd og innihald. Í öllum námskeiðum er mikil áhersla lögð á virka þátttöku og umræður, m.a. með því að nota verkefni, umræðuhópa og leiki sem kennsluaðferðir.

Meðal viðskiptavina fræðsludeildarinnar eru flestir bankar landsins, tryggingafélög, símafyrirtæki, hitaveitur, háskólar, framhaldsskólar, grunnskólar, leikskólar, félagsþjónustur, hótel, fyrirtæki í iðnaði, sveitafélög, verslanir, félagasamtök, opinberar stofnanir og svo mætti lengi telja. Þau sveitarfélög sem eru með þjónustusamninga við Alþjóðahúsið fá afslátt af allri seldri þjónustu.

Fastir starfsmenn fræðsludeildar Alþjóðahússins eru:
Sólveig Jónasdóttir, MA mannfræði, verkefnastjóri
Jóhann Björnsson, MA heimspeki, kennari, fræðslufulltrúi

Auk þeirra koma aðrir starfsmenn hússins, auk annarra sérhæfðra aðila einnig að fræðsluefnisgerð og námskeiðahaldi.

Hér má sjá sýnishorn af þeim námskeiðum sem í boði eru. Öll námskeið má sérsníða ákveðnum hópum, bæði hvað varðar efni og innihald, námskeiðslengd o.s.frv. eins og áður sagði.

 

Fræðsla fyrir fyrirtæki:

Sjá lista yfir námskeið í boði.

 

Fræðsla fyrir innflytjendur:

Sjá lista yfir námskeið í boði.


Túlkaþjónusta Alþjóðahúss býður upp á eftirfarandi námskeið:

Sjá lista yfir námskeið í boði.

 

Fræðsla fyrir skóla:

Sjá lista yfir námskeið í boði.

 

Ýmis námskeið:

Sjá lista yfir námskeið í boði.

 
« poprzedni artykuÅ‚   nastÄ™pny artykuÅ‚ »