Information

Translation Service

Click here  to order an interpreter. Or call 530-9303.

Nytsamlegir tenglar

   

 

 

 

Móðurmál er máttur 

 

Ýmis námskeið PDF Print E-mail
Saturday, 16 August 2008

Styttri fyrirlestrar (1-2 klst.)
Athugið að hér er einungis birt dæmi um efni nokkurra fyrirlestra sem hafa verið vinsælir en við bjóðum einnig upp á það að sérsníða efni námskeiða og fyrirlestra fyrir mismunandi hópa, m.a. með því að vinna tölfræðiupplýsingar um viðkomandi svæði eða hópa. Verð per klst. kr. 16.000

 

Fyrirlestur um fjölmenningu á íslenskum vinnustöðum
Fyrirlesturinn er ætlaður öllum almennum starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.
Farið verður yfir:
• Stöðu innflytjendamála á Íslandi almennt og stöðu mála á vinnumarkaði. Breytingar og þróun undanfarinna ára skoðaðar og ræddar.
• Stöðu innflytjenda með tilliti til vinnustaða. Þá verður einnig stiklað á stóru í umræðunni um fordóma og staðalímyndir.
• Samskipti á vinnustað, hvernig hægt er að verða betri vinnufélagi, samskipti þrátt fyrir tungumálaörðugleika og hvernig bæta má starfsandann á vinnustaðnum.
• Einnig er möguleiki á að fara aðeins inn á hlutverk trúnaðarmanna á fjölmenningarlegum vinnustað, þar sem það á við. Og skoða m.a. nýja stöðu trúnaðarmanna, mögulegar breyttar skyldur þeirra og ábyrgð með tilliti til fjölmenningalegs vinnustaðar.

 

Fjölmenning og framtíðarsamfélagið
• Hvað er fjölmenning annað en þjóðbúningar og framandi matargerð?
• Fjallað verður fjölmenningu og um málefni innflytjenda almennt. 
• Einnig verður rætt um þá erfiðleika og tækifæri sem innflytjendur mæta í nýju landi og mikilvægi aðlögunar.
• Síðast en ekki síst verður farið í það hvernig heimamenn geta tekið þátt í og auðveldað aðlögunarferlið og skapað þannig fjölmenningarsamfélag framtíðarinnar.

 

Innflytjendur – vannýttur mannauður
Fyrirlesturinn er ætlaður starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka og ætlaður til að vekja hugsun og umræðu um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði. Það hefur lengi loðað við innflytjendur hér á landi að á þá litið sem tímabundið vinnuafl eða jafnvel farandverkamenn. Efni þessa fyrirlestrar er að stikla á aðeins á þeirri umræðu og mögulega leiðrétta einhverjar ranghugmyndir um málefni þeirra.
• Sérfræðingar eða vinnuafl?
• Hafa innflytjendur sama aðgang að góðri vinnu og Íslendingar?
• Er menntun þeirra, reynsla og hæfni nýtt sem skyldi?
• Fá innflytjendur nám sitt viðurkennt? Hverju er samfélagið að missa af?

 

Mannréttindafræðsla
Hver eru helstu mannréttindi. Hvað er það sem skerðir réttindi fólks? Fordómar, skoðanir, staðalmyndir og rasismi. Hver er munurinn? Rætt verður um birtingarform fordóma og hvernig þeir hafa áhrif á líf bæði þess sem hefur þá og þess sem verður fyrir þeim.

Markmið: Að skapa opinskáar og heiðarlegar umræður um mannréttindi, fjölmenningu, menningarmun, fordóma og rasisma. Umræðan sett í samhengi við íslenskt samfélag og líf þátttakenda.
Tími: 2 klst.
Verð: 32.000

 

Fjölmenning – kynning á framandi menningu
Fjölmargir einstaklingar af erlendum uppruna í tengslum við Alþjóðahús hafa haldið kynningar á landi sínu, þjóð og menningu fyrir vinnustaði og hópa. Um getur verið að ræða stuttir kynningarfundir í hádegi þar með jafnvel er boðið upp á matarsmakk og tónlist. Vinsamlegast hafið samband við fræðsludeild til að athuga hvað getur verið í boði hverju sinni.


Konur og Islam
Farið verður yfir menningu og siði tengda Islam, með sérstöku tilliti til Kóransins og kvenna.
Leiðbeinandi er Amal Tamimi, félagsfræðingur og fræðslufulltrúi Alþjóðahúss. Amal er múslimi frá Palestínu og hefur m.a. mikla þekkingu og reynslu af starfi með konum frá mismunandi löndum.
Boðið er upp á námskeiðið í samvinnu við Amal Tamimi hjá Jafnréttishúsi.


Breakfast with Barbara, 2 klst.
Persónuleg ráðgjöf til eiginkvenna erlendra starfsmanna og stjórnenda, byggð á eigin reynslu. Barbara flutti til Íslands árið 1991 frá New York og hefur starfað sem ráðgjafi Alþjóðahúss síðan 2001.
Tími: 2 klst.
Verð: 32.000,-
Leiðbeinandi; Barbara Jean Kristvinsson.

 
< Prev   Next >