Information

Translation Service

Click here  to order an interpreter. Or call 530-9303.

Nytsamlegir tenglar

   

 

 

 

Móðurmál er máttur 

 

Túlkar og þýðendur Alþjóðahúss PDF Print E-mail
Saturday, 16 August 2008

Alþjóðahús býður upp á túlka- og þýðingarþjónustu á u.þ.b. 50 tungumálum.

Til að samskipti geti átt sér stað milli fólks sem ekki talar sama tungumál getur verið nauðsynlegt að fá aðstoð túlks. Túlkurinn er lykillinn að því að upplýsingar berist hratt og án misskilnings á milli einstaklinga og er því hagur allra. Túlkur er einnig hlutlaus aðili og bundinn þagnarskyldu.



Fjölskyldumeðlimir, ættingjar, vinir eða aðrir tengdir aðilar ættu ekki að vera notaðir í staðinn fyrir reyndan og óháðan túlk. Aldrei á að nota börn  sem túlka.

Réttur þinn
Þeir sem ekki tala íslensku eiga í sumum tilfellum rétt á túlki án endurgjalds. Íslendingar eru aðilar að mörgum alþjóðasamningum sem tryggja einstaklingum sem ekki tala íslensku þann rétt að notaður skuli túlkur í dómsmálum og hefur það verið lögfest í íslenskum lögum. Einstaklingur á þannig rétt á ókeypis túlki í opinberum málum, einkarefsimálum, faðernismálum og þegar fólk er svipt fjárræði eða sjálfræði.  Þá tryggja lög sjúklingi sem ekki skilur íslensku ókeypis túlk þegar hann fer til læknis. Skilyrði er þó að hann sé sjúkratryggður.

Athugið!
Þegar pantaður er tími hjá stofnun fyrir einstakling sem ekki talar íslensku, á að biðja um að túlkur verði til staðar í viðtalinu (nema einstaklingurinn vilji það alls ekki). Í sumum tilfellum er ekki nóg að segja að einstaklingurinn sé frá tilteknu landi, heldur þarf að koma skýrt fram hvaða mál/mállýsku einstaklingurinn talar. Það er síðan hlutverk starfsmanna hverrar stofnunar að panta túlkinn hjá túlkaþjónustu Alþjóðahúss.

Hægt er að panta túlk með því að senda póst á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

Túlkaþjónustan býður upp á:
Túlkun fyrir opinberar stofnanir t.d. í heilbrigðis- og félagsþjónustu, í skólum, hjá stéttarfélögum, lögreglu, fyrirtækjum o.s.frv.  Einnig fyrir einstaklinga í einkamálum.

Túlkun í gegnum síma. Þýðingar á skjölum, t.d. vottorðum, prófskírteinum, bréfum, bæklingum o.fl.

Það skal tekið fram að þýðingar og túlkanir eru ekki alltaf einstaklingum að kostnaðarlausu.

Túlkurinn er óháður aðili og tekur ekki afstöðu

Túlkurinn er ekki ráðgjafi eða aðstoðarmaður þeirra sem fá túlk til starfa.

Allt sem sagt er á að túlka.

Túlkurinn hefur ekki leyfi til að koma með sínar eigin skoðanir meðan á túlkun stendur og hafa þannig áhrif á framvindu viðtalsins.

Túlkurinn á ekki að koma með ráðleggingar eða athugasemdir eða bæta neinu við frá eigin brjósti.

Túlkurinn á ekki að svara spurningum varðandi þann sem túlkað er fyrir.

Túlkurinn ber ekki ábyrgð á að upplýsingar sem gefnar eru (frá báðum aðilum) séu réttar og sannar.

Góð ráð í samskiptum með milligöngu túlks:

Talaðu beint til viðmælanda þíns og forðastu setningar eins og ,,...segðu henni/honum að...” eða ,,...spurðu hann/hana...”.
Horfðu á og beindu athygli þinni að viðmælanda þínum en ekki að túlknum.
Talaðu ekki við túlkinn um viðmælanda þinn í þriðju persónu.
Forðastu að spyrja túlkinn um hans/hennar álit.

Mundu að allt sem er túlkað er trúnaðarmál

Alþjóðahús/The Intercultural Center
Túlkunar og þýðingarþjónusta

Laugavegur 37
101 Reykjavík
Sími: 530 9303
Fax: 530 9301   

Helga Margrét Reinhardsdóttir – This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
María Jolanta Polanska – This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
Raul Saenz – This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
Julia Hannam – This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

 
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ert í vafa um þær upplýsingar sem fram koma á þessari blaðsíðu, skaltu hafa samband við Alþjóðahús, s: 530 9300,  This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it

 
< Prev   Next >
Services

Mailing List

Click here to subscribe to The Intercultural Centre´s mailing list.

FOLK

 

 

Heilsa